| |
Bjóðum nýja leigutaka velkomna á Þórisstaði
Bjössi,Helena og Fylkir flutt á Þórisstaði |
|
 |
| Ágætu Stjá félagar. Nýir leigutakar hafa tekið við á Þórisstöðum frá og með 1 mars 2012.
Bjóðum við þau hjartanlega velkomin og óskum þeim góðs gengis og gæfu á staðnum.
Þau heita Björn Páll Fálki Valsson ,Helena Þrastardóttir og sonur þeirra Fylkir Björnsson.
Það er gleðiefni að fá börn á Þórisstaði aftur. Um leið viljum við þakka Jenný og Elís þeirra góða brautryðjendastarf og óskum þeim alls hins besta í framtíðinni.
Stjá-félagar eru hvattir til að skoða uppfærða heimasíðu á Þórisstöðum www.thorisstadir.is Þar er margt áhugavert,og ekki síst dýragarðurinn sem verið er að koma upp. Sími á Þórisstöðum er sá sami 4338975 en gsm er 6900154.
Stjá-félagar hafa áfram frían aðgang að tjaldstæðum og golfi. Veiðikortið gildir í vötnin eins og undanfarin 2 ár. Stjá-félagar hafa forgang að sumarhúsinu "Klafastöðum" ef þeir panta fyrir 15 apríl.
Á Þórisstöðum er bátur Stjá til notkunar fyrir félagsmenn. Skrá þarf sig á Þórisstöðum og kvitta með kennitölu. Bensín á mótor er á staðnum og greiðist til umsjónarmanns (Bjössa og Helenu).
Hvetjum alla Stjá-félaga til að leita ekki langt yfir skammt og njóta lífsins á Þórisstöðum. Ekki skemmir að hafa slíka perlu við hendina í ört hækkandi bensínverði.
Lengi lifi STJÁ. Skafti Steinólfsson form. STJÁ. |
Meira >> |
| |
 |
| |
Starfshópur STJÁ
Starfshópur Stjá skilar tillögum til stjórnar |
|
|
| Starfshópurinn er þannig skipaður:
Svandís Vilmundardóttir. Elkem. Skafti Steinólfsson Elkem. Álfheiður Ágústdóttir Elkem.
Smári Guðjónsson Klafa. Hrafnhildur Sigurðardóttir ISS. Vilhjálmur Gunnarsson GTT/Meitill.
Þór A Gunnarsson Fulltrúi lóðarhafa á Þórisstöðum.
Starfshópurinn hefur fundað 4 sinnum frá áramótum. |
Meira >> |
| |
 |
| |
Vefkönnun Stjá
Vefkönnun um framtíð Stjá. |
|
|
| Starfshópur Stjá hefur sett í gang vefkönnun. Til að taka þá smellið á linkinn hér fyrir neðan
http://stja.questionpro.com/
Stjórn Stjá hvetur alla til að taka þátt í könnuninni segja sína skoðun. Það er mikilvægt nesti fyrir aðalfund Stjá. Með félagskveðju f/h stjórnar Skafti Steinólfsson form. |
Meira >> |
| |
 |
| |
Áríðandi fundur
Félagsfundur STJÁ á Gamla Kaupfélaginu 23 nóv |
|
|
| Hvetjum alla til að mæta á félagsfundinn í kvöld og segja sínar skoðanir
Pizza og bjór í fundarlok. Mætum öll ...stjórnin
Kennitala Stjá: 710881-0229 Reikn 0186-05-8210. |
Meira >> |
| |
 |
| |
Skýrsla stjórnar STJÁ
flutt á aðlafundi félagsins 23. mars 2010 |
|
|
| Árið 2009 var afar viðburðaríkt hjá STJÁ, enda um 30 ára afmælisár að ræða. Afmælisárið var einnig um margt öðruvísi en þau ár sem á undan hafa farið, því eins og ykkur öllum er kunnugt var þetta líka síðasta árið sem félagið nýtur stuðnings fyrirtækjanna á svæði félagsins. Engu að síður ákvað stjórn og skemmtinefnd að sameina krafta sína í eina stóra afmælisnefnd sem skipulagði hinar ýmsu uppákomur í tilefni afmælisins.
|
Meira >> |
| |
 |